Þéttar
Þéttar
Þéttar eru til í mörgum útgáfum bæði með tilliti til stærðar og úr hverju þeir eru búnir til. Þéttar geta geymt hleðslur og virka því eins og örsmáar rafhlöður þó að erfitt sé að nota þá sem slíkar. Þessi eiginleiki þétta til að geyma hleðslu nefnist rýmd og er mæld í farödum (F). Hversu mikill straumur rennur í gegnum þétti er háð tíðninni á spennumerkinu sem er sett yfir hann. Þannig geta þeir virkað til að hleypa ákveðnum tíðnum í gegn en sá eiginleiki hentar vel við útvarpssmíði og er hann notaður til að stilla af tíðnina á útvarpsstöðinni sem við viljum hlusta á.
Um Farad
Farad er stór eining þannig að yfirleitt er margföldunarstuðull fyrir framan: míkrófarad = μF, 1 μF = (1/1.000.000)F, nanófarad = nF, 1 nF = (1/1.000.000.000)F og píkófarad = pF, 1 pF = (1/1.000.000.000.000)F.
Um þétta og stærð þeirra
Gerð þétta ræðst af því hversu mörg farad þeir eiga að vera. Litlir þéttar (1 pF– 50 nF) eru búnir til úr keramík. Þeir eru merktir með bókstöfum og oft er F-inu sleppt (dæmi 4n7 þýðir 4,7 nanófarad og 27p þýðir 27 píkófarad).