FAB Tal(K) FabLab Reykjavik/is

From Fab Lab Wiki - by NMÍ Kvikan
Revision as of 17:30, 17 September 2014 by LinWan (Talk | contribs)

(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to: navigation, search


FabTalk01.JPG


FAB TAL(K) - FAB LAB og skólastarf

þriðjudaginn 16. september

Heimilisfang: FabLab Reykjavík (Eddufelli 2, 111 Reykjavík.)

Sími: 567 5522


Fab Lab og kennsla, samþætting skólastiga og greina - Soffía M. Magnúsdóttir

Lengi hefur verið áhugi innan skóla á að blanda skólastigum og brautum. Á haustönn verður kenndur áfangi í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti þar sem verið er að tengja skólastig og greinar. Fyrirlesturinn mun fjalla um þetta viðfangsefni og fyrstu skref í kennslu í Fab Lab Reykjavík. Soffía M. Magnúsdóttir er framhaldskólakennari í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og starfsmaður Fab Lab Reykjavik - vorönn 2014.


Litli uppfinningaskólinn í FAB LAB - Rósa Gunnarsdóttir

Sagt verður frá Litla uppfinningaskólanum og samstarfi hans við FABLAB bæði hér heima og erlendis í máli og myndum. Rósa Gunnarsdóttir er með doktorsgráðu í nýsköpunarmennt frá Háskólanum í Leeds í Englandi. Hún hannaði námskeiðið „Litli uppfinningaskólinn“ sem er ætlað börnum á aldrinum 9-12 ára þar sem leitað er að þörfum í samfélaginu, fundnar lausnir við þeim, búin til líkön og frumgerðir.


Kaffisopi og umræður

Fab Lab Reykjavík mun bjóða upp á Fab Tal(k) þriðja þriðjudag í mánuði kl. 17. Fyrsta Fab Talið mun snúast um skólastarf, þá munum við fjalla um vöruþróun, nýsköpun og ýmislegt fleira. Ert þú kannski með hugmynd að viðfangsefni?