Fab Lab Austurland/is

From Fab Lab Wiki - by NMÍ Kvikan
Revision as of 17:40, 4 January 2015 by Lilja (Talk | contribs)

Jump to: navigation, search

Fab Lab Austurland

Fab Lab Austurland var opnað í nóvember 2014 sem samstarfsverkefni Verkmenntaskóli Austurlands, Austurbrú og Innovation Center Iceland

Fab Lab er stafræn smiðja með tækjum og tólum til að búa til nánast hvað sem er. Fab Lab smiðjan gefur ungum sem öldnum, einstaklingum og fyrirtækjum, tækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna og hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd með því að hanna, móta og framleiða hluti með aðstoð stafrænnar tækni.

Fab Lab er stytting á Fabrication Laboratory sem útleggja mætti sem ,,framleiðslurannsóknarstofa". Markmiðið er að veita innblástur til nýsköpunar og kenna hvernig fara má frá hugmynd til fullbúinnar vöru með stafrænni framleiðslutækni; hvort sem það er frumgerð, listaverk eða önnur hönnun. Í Fab Lab smiðjum er áhersla lögð á að vinna með opinn hugbúnað og búa smiðjurnar yfir ýmsum tækjum og aðstöðu til vinnu og smíði á hugmyndum. Helstu tækin eru laserskeri, vínylskeri, þrívíddarprentari, stór CNC fræsari og fínfræsari.


Staðsetning


View Larger Map

Póstfang:
Verkmenntaskóli Austurlands, Mýrargötu 10, 740 Fjarðabyggð

(athugið: Fab Lab Austurland er staðsett í verkkennsluhúsi Verkmenntaskólans og aðalinngangur er um stiga á bakhlið (suðurhlið) hússins).


Opnunartími



Almennur opnunartími

Hér getur fólk gengið inn - þarf ekki að panta tíma eða hafa samband fyrirfram.

Opið eftir samkomulagi

Hér er hægt að panta sér tíma. T.d. ef einstaklingar vilja bóka sig í ákveðin tæki, fá hjálp við eitthvað ákveðið o.s.frv.

VA

Kennsla í smiðjunni á vegum Verkmenntaskóla Austurlands.

Grunnskóli

Grunnskólanemendur í tímum í smiðjunni.


Starfsmaður

Lilja Guðný Jóhannesdóttir
Sími: 477 1285
Tölvupóstur: lilja@austurbru.is


Fab Lab Austurland á fleiri stöðum á netinu
Fab Lab Austurland á Facebook

Tæki / Aðstaða

Laserskeri

Vinylskeri

Fínfræsivél

Stór fræsivél - ShopBot

ShopBot fræsarinn okkar sker ekki málma
Þótt Shopbot fræsarinn gæti skorið mýkri málma (látún og mýkri) er vélin ekki sett upp til að skera þá.

3D skönnun (ekki til staðar enn sem komið er)

Þrívíddarprentari

Mótun og afsteypur / molding and Casting (ekki til staðar enn sem komið er)

Rafeindaverkstæði (ekki til staðar enn sem komið er)

Kennslustofa

  • 4x tölvur með opnum hugbúnaði og Internetaðgangi
  • 1x kynningarútstöð með skjá og hljóði

Hugbúnaður

Myndbönd