Fab modules/is

From Fab Lab Wiki - by NMÍ Kvikan
Jump to: navigation, search

Tengja tölvu og Roland Modela fræsivél

Fyrsta skref er að ná sambandi milli fræsivélar og tölvu. Opnið terminal í Linux stýrikerfinu.

1-4.png
5.png

Byrjið á að skrifa "cd FabModules". Skipunin cd breytir hvar þú ert í skráarkerfi tölvunnar (change directory).

nmi@Lithium:~$ cd FabModules

Næsta skipun er ls. Sú skipun birtir lista af skrám inni í möppunni sem við vorum að opna (list).

nmi@Lithium:~/FabModules$ ls

Þar á meðal er skrá sem heitir mod_server. Opnið mod_server skránna og birtið svo lista af skrám inni í þeirri möppu.

nmi@Lithium:~/FabModules$ cd mod_server
nmi@Lithium:~/FabModules/mod_server$ ls

Nú sláið þið inn skipunina node mod_server.js

nmi@Lithium:~/FabModules/mod_server$ node mod_server.js

Nú ætti Roland Modela fræsivélin að ná sambandi við tölvuna.

Fræsing með Fab Modules

Hugbúnaðurinn sem notaður er til þess að undirbúa teikninguna fyrir fræsun heitir Fab Modules. Ekki þarf að hala niður hugbúnaðinum heldur er hann aðgengilegur í gegnum vafra. Farið er inn á slóðina http://fabmodules.org

Traces

Traces

Byrjið á að fræsa rásina sjálfa (traces). Notið 1/64 bita í það ferli.

  • Input format: Smellið á image(.png). Veljið svo rásina sem þið ætlið að fræsa.
  • Output format: Veljið Roland Mill (.rml)
  • Process: Veljið PCB traces(1/64) þar sem 1/64 tönn er notuð í þetta verk.
  • Nú þarf að velja vél(output). Það getur verið misjafnt eftir Fab Lab smiðjum. Fab Lab Vestmannaeyjar er með MDX-20 týpuna.
  • Til þess að ná að stýra vélinni þarf að breyta textanum í skipanalínunni(command line) örlítið.
mod_serial.py /dev/ttyUSB0 9600 dsrdtr 

verður að

mod_serial.py /dev/ttyS0 9600 dsrdtr   

Þetta fer þó eftir tengingu fræsivélar og tölvu. Þessar stillingar hér að ofan eiga við Fab Lab Vestmannaeyjar.

  • Breytið cut depth í 0.2 mm


  • Setjið inn x- og y-hnit á þeim stað sem fræsingin hefst og smellið á “xyz0” hnappinn til að færa bitann á þann stað.


  • Ýtið á calculate í process dálknum. Forritið reiknar út leiðina sem það fer í skurðinum


  • Ýtið á send og skurðurinn hefst

Outline

  • Input format: Smellið á image(.png). Veljið útlínu mynd.


  • Output format: Veljið Roland Mill (.rml)


  • Process: Veljið PCB outline(1/32) þar sem 1/32 tönn er notuð í útskurð.


  • Nú þarf að velja vél(output). Það getur verið misjafnt eftir Fab Lab smiðjum. Fab Lab Vestmannaeyjar er með MDX-20 týpuna.


  • Til þess að ná að stýra vélinni þarf að breyta textanum í skipanalínunni(command line) örlítið.
mod_serial.py /dev/ttyUSB0 9600 dsrdtr 

verður að

mod_serial.py /dev/ttyS0 9600 dsrdtr   

Þetta fer þó eftir tengingu fræsivélar og tölvu. Þessar stillingar hér að ofan eiga við Fab Lab Vestmannaeyjar.

  • Hér þarf ekki að breyta neinu eins og í traces


  • Ýtið á calculate í process dálknum. Forritið reiknar út leiðina sem það fer í skurðinum


  • Ýtið á send og skurðurinn hefst

Athugið að X og Y hnitin þurfa að vera þau sömu og í traces.

Tenglar