Fræsing rafrása í Modela

From Fab Lab Wiki - by NMÍ Kvikan
Revision as of 11:43, 12 May 2009 by Spm (Talk | contribs)

Jump to: navigation, search
Roland Modela nýtist vel í rafrásagerð.

Undirbúningur rafrásar

Gerð fræsibrautar

CAD.py

Cam circuitcut1.png

Smella a Contour og svo Send to Machine Fræsing rafrásarinnar sjálfrar

Cam circuitcut2.png

Útskurður tilbúins rafrásarbrettis.

Fræsitennur

Skref fyrir skref

Takkarnir á Modela; frá toppi: Power, View, Up, Down
  1. Hannaðu rafrásina eða sæktu tilbúna rafrás
  2. Límdu koparplötu í botninn á vélinni
  3. Opnið Cad.py í Ubuntu með því að tvísmella á það og velja run
  4. Smellið á input og sækið rafrásaskrá (skrárheiti.cad)


Fræsing rásar

  1. Búðu til skurðarbrautina fyrir rafrásina. Gættu þess að gera ráð fyrir 1/64" tönn, sem er 0.0156 tommur.
  2. Settu 1/64" fræsitönn í tækið (hafa hátt uppi í kollettunni til að byrja með)
  3. Farðu úr View mode og stilltu núllpunkt á X og Y ás í hugbúnaðinum.
  4. Haltu Down takkanum inni ( i nokkrar sekundur) þar til að fræsihausinn færist niður að plötunni, ekki láta hana snerta
  5. Losaðu skrúfuna sem heldur fræsitönninni þannig að tönnin losni og detti niður og snerti plötuna.
    • Þó ekki láta hana detta beint, slakaðu henni frekar niður þannig að hún brotni ekki
    • Prófaðu að lyfta henni og sleppa til að vera viss um að ekkert sé fyrir
  6. Hertu skrúfuna fyrir fræsitönnina
    • Haltu kollettunni uppi og tönninni niðri meðan þú herðir svo hún verði ekki laus í.
  7. Sendu verkefnið á tækið. (Send to Machine)
  8. Þegar það er búið að fræsast, ýttu þá á View takkann.

Útskurður

  1. Búðu til skurðarbrautina fyrir rafrásina; notaðu möskvann sem á að skera eftir. Gættu þess að gera ráð fyrir 1/8" tönn.
  2. Settu 1/8" fræsitönn í tækið
  3. Farðu úr View mode og stilltu núllpunkt á X og Y ás úr hugbúnaðinum. Notaðu nákvæmlega sama núllpunkt og áður!
  4. Haltu Down takkanum inni þar til að fræsihausinn færist niður að plötunni, ekki láta hana snerta
  5. Losaðu skrúfuna sem heldur fræsitönninni þannig að tönninn detti niður og snerti plötuna.
    • Prófaðu að lyfta henni og sleppa til að vera viss um að ekkert sé fyrir
  6. Hertu skrúfuna fyrir fræsitönnina
  7. Laga skal stillingar i textaritli fjarlaegja # fyrir framan cad.function = frame og # fyrir framan z = -.065
  8. Sendu verkefnið á tækið.
  1. taka agnir i burtu med t.d. ryksugu
  2. hreinsa rafrásarbrettið með því að skola það með vatni og sápu til þess að rásin tærist ekki með tímanum.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

Ef eitthvað kemur upp á við fræsingu er hægt að smella á View takkann á fræsivélinni.

Til þess að hreinsa úr minni fræsivélarinnar er UP og DOWN tökkunum haldið inni í 5-6 sekúndur, halda tökkunum inni þar til Led ljós er hættir að blikka hjá VIEW takkanum..

Ef verkefni er sem hefur verið sent á úr cad.py er stöðvað þarf að slökkva á forritinu og byrja upp á nýtt. Þetta er t.d. hægt að gera með því að fara í Terminal í Linux og skrifa killall -9 python