STL

From Fab Lab Wiki - by NMÍ Kvikan
Revision as of 10:13, 31 March 2009 by Spm (Talk | contribs)

(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to: navigation, search

StL skrár eru algeng leið til að geyma þrívíddarlíkön. Skrárnar draga nafnið sitt frá StereoLithography. Gæta skal þess að rugla þessu ekki saman við Standard Template Library, sem er forritunarsafn fyrir C++ forritunarmálið.

Uppbygging

StL skráarsniðið geymir lista af þríhyrningum sem sameiginlega eiga að mynda yfirborð hlutar. Hver þríhyrningur hefur þrjá hornpunkta og hver hornpunktur hefur þrjú hnit. Framhlið þríhyrningsins er skilgreind sem sú hlið þar sem röð hornpunkta er rangsælis, og hefur hver þríhyrningur normlegan vigur sem stendur hornrétt á yfirborð þríhyrningsins frá framhlið með lengd 1.

Normlegur vigur er skilgreindur út frá áttun hnita. Mynd:Ennex
Sýnir hvernig þríhyrningar eru myndaðir. Mynd:Ennex


ASCII snið

StL-ASCII.gif

Binary snið

StL-binary.gif

Ítarefni