Analog-to-Digital breytar

From Fab Lab Wiki - by NMÍ Kvikan
Jump to: navigation, search

Analog-to-Digital breytir, eða ADC, er tæki sem tekur hliðrænar mælingar á spennu og skilar út stafrænt enkóðaðar mælingar.

ADC10bitexplain.png

Í þessu dæmi sést hvernig 10 bita ADC breyta sem vinnur á 0-5 voltum tekur mælingu rétt eftir sekúndu 9 og fær 2.27 volta spennu, og reiknar það yfir í bitarunu. 10 bita breyta hefur 210 = 1024 gildi, og því verður 2.27 / 5 * 1024 = 465.

Talan 465 er svo táknuð á binary sem 111010001.

Nákvæmni

Í dæminu að ofan er vel þess virði að athuga að enginn greinarmunur er gerður á 2.275 V spennu og 2.276 V spennu, þar sem 10 bita nákvæmni nær ekki að spanna sviðið nógu nákvæmlega. 11 bita nákvæmni býður hinsvegar upp á 2048 gildi, og þá náum við að gera greina greinarmun á 2.2750, 2.2755 og 2.2760.

Af þessu má sjá að það er alltaf hægt að auka nákvæmni ADC breyta með því fjölga bitunum.