Fræsing rafrása í Modela
From Fab Lab Wiki - by NMÍ Kvikan
Contents
Undirbúningur rafrásar
Gerð fræsibrautar
Fræsitennur
Skref fyrir skref
- Hannaðu rafrásina eða sæktu tilbúna rafrás
- Límdu koparplötu í botninn á vélinni
- Opnið Cad.py í Ubuntu með því að tvísmella á það og velja run
- Smellið á input og sækið rafrásaskrá (skrárheiti.cad)
Gerð skurðabrautar
- Búðu til skurðarbrautina fyrir rafrásina. Gættu þess að gera ráð fyrir 1/64" tönn, sem er 0.0156 tommur.
- Smelltu á Cam
- Smelltu á Output format --> Velja .rml (Modela)
- Neðst í textareit er "#dpi = 500 " fjarlægjið "#"
- Hafa fjölda brauta -1 við Contours (sem þýðir óendanlegt)
- Smella a Contour
Undirbúningur fræsivélar
Fræsing rásar
- Settu 1/64" fræsitönn í tækið (hafa hátt uppi í kollettunni til að byrja með)
- Hreinsa úr minni fræsivélar með því að halda inni Up og Down tökkunum
- Farðu úr View mode (með því að smella á View takka á fræsivél)
- Stilltu núllpunkt á X og Y ás í hugbúnaðinum, með því að smella á Move
- Haltu Down takkanum inni ( i nokkrar sekundur) þar til að fræsihausinn færist niður að plötunni, ekki láta hana snerta
- Losaðu skrúfuna sem heldur fræsitönninni þannig að tönnin losni og en gættu þess að tönnin detti ekki niður með því að halda við hana en hún á svo að snerta plötuna.
- Þó ekki láta hana detta beint, slakaðu henni frekar niður þannig að hún brotni ekki
- Prófaðu að lyfta henni örlítið og sleppa til að vera viss um að ekkert sé fyrir
- Hertu skrúfuna fyrir fræsitönnina
- Haltu kollettunni uppi og tönninni niðri meðan þú herðir svo hún verði ekki laus í.
- Sendu verkefnið á tækið. (Send to Machine)
- Þegar það er búið að fræsast, ýttu þá á View takkann.
Útskurður
- Búðu til skurðarbrautina fyrir rafrásina; notaðu möskvann sem á að skera eftir. Gættu þess að gera ráð fyrir 1/32" tönn.
- Settu 1/32" fræsitönn í fræsivélina,
- Fyllið inn í hugbúnaðinum í reitinn við Tool diameter: 0.0312
- Stillið Contours í hugbúnaðnum á 1.
- xy speed 0.5 og z speed 0.5.
- Í textaritlinum skal fjarlægja # fyrir framan cad.function = pcb.interior og # fyrir framan z = -.065skal fjarlægja "#" þar sem stendur:
#cad.function = pcb.interior #z = -.065
- Smellið á Contour í hugbúnaðnum
- Farðu úr View mode með því að smella á View takkann á fræsivélinni og stilltu núllpunkt á X og Y ás úr hugbúnaðinum með því að smella á Move. Notaðu nákvæmlega sama núllpunkt og áður!
- Haltu Down takkanum inni þar til að fræsihausinn færist niður að plötunni, ekki láta hana snerta
- Losaðu skrúfuna sem heldur fræsitönninni þannig að tönninn detti niður og snerti plötuna.
- Prófaðu að lyfta henni og sleppa til að vera viss um að ekkert sé fyrir
- Hertu skrúfuna fyrir fræsitönnina
- Sendu verkefnið á tækið.
Frágangur
- Taka agnir i burtu med t.d. ryksugu
- hreinsa rafrásarbrettið með því að skola það með vatni og sápu til þess að rásin tærist ekki með tímanum.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
Ef eitthvað kemur upp á við fræsingu er hægt að smella á View takkann á fræsivélinni.
Til þess að hreinsa úr minni fræsivélarinnar er UP og DOWN tökkunum haldið inni í 5-6 sekúndur, halda tökkunum inni þar til Led ljós er hættir að blikka hjá VIEW takkanum..
Ef verkefni er sem hefur verið sent á úr cad.py er stöðvað þarf að slökkva á forritinu og byrja upp á nýtt. Þetta er t.d. hægt að gera með því að fara í Terminal í Linux og skrifa killall -9 python
Dæmi sem læra má af
- Þegar við stilltum z min gildi á 0.065 ( með þremur aukastöfum) vildi Cad.py ekki framkvæmda Contours.