Vínylskeri: Roland GX-24 - leiðbeiningar

From Fab Lab Wiki - by NMÍ Kvikan
Jump to: navigation, search

Leiðbeiningar um notkun vínylskerans

1. Kveiktu á vélinni með því að ýta á bláa takkann.

1 leidbeiningar.png



2. Staðsettu efnið sem á að skera úr vinstra megin í vínylskeranum.

2 leidbeiningar.png



3. Vínyllinn þarf að hylja linsuna og það er önnur linsa aftan á.

3 leidbeiningar.png



4. Staðsettu bæði hjólin ofan á vínylnum.

Hjólin á að færa til aftan frá!

Einnig þarf að passa að bæði hjólin séu staðsett á ,,hvíta svæðinu“.

4 leidbeiningar.png



5. Togaðu nú slána aftan á vínylskeranum upp til að festa efnið.

5 leidbeiningar.png



6. Flettu niður með örvalyklunum. Veldu ,,piece“ og ýttu svo á ,,enter“. Þá fer mótorinn í gang og vélin mælir efnið.

(Ef skjárinn sýnir ,,bad position“ ýttu þá á menu til að fá fram ,,unsetup“ og svo á ,,enter“. Ýttu því næst stönginni frá þér (sem festir efnið) og færðu hjólin á betri stað – þ.e. yfir linsuna og á hvítu línunum. Veldu svo aftur ,,piece“ og ,,enter“)

6 leidbeiningar.png



7. Opnaðu nú PDF skjalið með hönnuninni þinni og veldu þar ,,print“ (file → print).

7 leidbeiningar.png



8. file → print

8 leidbeiningar.png



9. Veldu Actual size

Veldu Portrait Smelltu svo á Properties

9 leidbeiningar.png


10. Smelltu á ,,get from machine“ hnappinn. Smelltu svo á OK.

10 leidbeiningar.png



11. Skoðaðu vel ,,priview“ gluggann. Ef hann lítur ekki vel út (fjólubláar línur og gráir fletir) veldu þá ,,fit“ í staðinn fyrir ,,actual size“. Þegar þetta lítur vel út, smelltu þá á ,,print“

11 leidbeiningar.png



12. Þegar vélin hættir að hreyfast er hún búin að skera. Losaðu stöngina að aftan (sem festir efnið) og nú geturðu tekið límmiðann úr.

12 leidbeiningar.png



13. Smelltu loks á ,,enter“ á vélinni til að færa mótorinn á byrjunarreit.

13 leidbeiningar.png