Fab Lab Austurland/is
Fab Lab Austurland
Fab Lab Austurland var opnað í nóvember 2014 sem samstarfsverkefni Verkmenntaskóli Austurlands, Austurbrú og Innovation Center Iceland
Fab Lab er stytting á ,,Fabrication Laboratory" sem útleggja mætti sem ,,framleiðslurannsóknarstofa". Markmiðið er að veita innblástur til nýsköpunar og kenna hvernig fara má frá hugmynd til fullbúinnar vöru með stafrænni framleiðslutækni; hvort sem það er frumgerð, listaverk eða önnur hönnun. Í Fab Lab smiðjum er áhersla lögð á að vinna með opinn hugbúnað og búa smiðjurnar yfir ýmsum ýmsum tækjum og aðstöðu til vinnu og smíði á hugmyndum. Helstu tækin eru laserskeri, vínylskeri, þrívíddarprentari, stór CNC fræsari og fínfræsari.
Fab Lab (Fabrication Laboratory) er stafræn smiðja með tækjum og tólum til að búa til nánast hvað sem er. Fab Lab smiðjan gefur ungum sem öldnum, einstaklingum og fyrirtækjum, tækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna og hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd með því að hanna, móta og framleiða hluti með aðstoð stafrænnar tækni. Í Fab Lab er áhersla lögð á á vinna með opinn hugbúnað
Tengiliður
Sími: 470 3832
Tölvupóstur: lilja@austurbru.is
Heimilisfang: Verkmenntaskóli Austurlands, Mýrargötu 10, 740 Fjarðabyggð
(athugið: Fab Lab Austurland er staðsett í verkkennsluhúsi Verkmenntaskólans og aðalinngangur er um stiga á bakhlið (suðurhlið) hússins).
Starfsmaður:
Lilja Guðný Jóhannesdóttir
Staðsetning
Tímar opnir almenningi
Tæki / Aðstaða
Laserskeri
- 1x Epilog Mini 24 - 40Watt
- 1x Rotary attachment
Vinylskeri
Fínfræsivél
Stór fræsivél - ShopBot
ShopBot fræsarinn okkar sker ekki málma
Þótt Shopbot fræsarinn gæti skorið mýkri málma (látún og mýkri) er vélin ekki sett upp til að skera þá.
3D skönnun (ekki til staðar enn sem komið er)
Þrívíddarprentari
- 1x Ultimaker 2
Mótun og afsteypur / molding and Casting (ekki til staðar enn sem komið er)
Rafeindaverkstæði (ekki til staðar enn sem komið er)
Kennslustofa
- 4x tölvur með opnum hugbúnaði og Internetaðgangi
- 1x kynningarútstöð með skjá og hljóði