From Fab Lab Wiki - by NMÍ Kvikan
Jump to navigation Jump to search

Til þess að skera út límmiða í Roland GX 24

Hægt er að skera út límmiða í Roland GX 24 beint úr Inkscape:

Kveikja á Roland vinyl skera

  1. Kveikið á Roland vinylskeranum.
  2. Ákveða lit sem á að nota.
  3. Setjið efni í Roland vinylskerann. Hægt er að setja efnið í að framanverðu sem og að aftanverðu.
  4. Láta efnið ná fram yfir ljósnemann sem er framan á vélinni.
  5. Hjólin eru stillt með því að færa þau til ofan á efnið. Vinsta hjólið á að vera staðsett nálægt endanum vinstra megin eða á hvíta breiða svæðið. Hægra hjólið á svo að vera við þá reiti sem eru merktir með hvítum límmiða.
  6. Ath hægt er að losa um á bakhlið til að setja inn efnið, eftir það verður að læsa bakhliðinni aftur.
  7. Smellið á pílur upp eða niður sem eru hægra megin á skeranum og veljið Piece ef notaður er bútur en Roll ef notuð er rúlla.
  8. Síðan er smellt á Enter á vinyl skeraranum.

Undirbúningur

Útbúið vektor mynd í Inkscape

Stafir skulu ekki vera með fyllingu (sbr. Object-> Fill and Stroke og hafa No Fill).

Ef um mynd er ræða er gott að hafa í huga að hafa annað hvort engar útlínur eða enga fyllingu.

Best er að vista Inkscape file í PDF format og skera þannig út.

Skera út

  1. Veljið File -> Print -> Roland GX 24
  2. Veljið Preferences -> Veljið Get data from Machine.
  3. Smellið svo á OK eða Print


Einnig er hægt að notast við Cut Studio hugbúnaðinn


Tenglar

http://www.rolanddga.com/asd/products/cutters/gx24/ Vídeó hvernig festa á límmiða upp