Til þess að skera út límmiða í Roland GX 24
Hægt er að skera út límmiða í Roland GX 24 beint úr Inkscape:
Kveikja á Roland vinyl skera
- Kveikið á Roland vinylskeranum.
- Ákveða lit sem á að nota.
- Setjið efni í Roland vinylskerann. Hægt er að setja efnið í að framanverðu sem og að aftanverðu.
- Láta efnið ná fram yfir ljósnemann sem er framan á vélinni.
- Hjólin eru stillt með því að færa þau til ofan á efnið. Vinsta hjólið á að vera staðsett nálægt endanum vinstra megin eða á hvíta breiða svæðið. Hægra hjólið á svo að vera við þá reiti sem eru merktir með hvítum límmiða.
- ATH hægt er að losa um á bakhlið til að setja inn efnið, eftir það verður að læsa bakhliðinni aftur.
- Smellið á pílur upp eða niður sem eru hægra megin á skeranum og veljið Piece ef notaður er bútur en Roll ef notuð er rúlla.
- Síðan er smellt á Enter á vinyl skeraranum.
Undirbúningur
Útbúið vektor mynd í Inkscape
Stafir skulu ekki vera með fyllingu (sbr. Object-> Fill and Stroke og hafa No Fill).
Ef um mynd eða hlut er ræða er gott að hafa í huga að hafa annað hvort engar útlínur eða enga fyllingu, eftir því hvað á að skera út.
Best er að vista Inkscape file í PDF format og skera þannig út.
Skera út
- Veljið File -> Print -> Roland GX 24.
- Veljið Preferences -> Smella á Get data from Machine.
Ef notuð er rúlla er ágætt að setja lengdina inn. Það er gert með því að smella á Properties og length stillt.
Áður en skorið er út þarf að stilla Page Scaling á NONE og taka hak af Auto Rotate and centre.
- Smellið svo á OK eða Print
Einnig er hægt að notast við Cut Studio hugbúnaðinn
Tenglar
http://www.rolanddga.com/asd/products/cutters/gx24/ Vídeó hvernig festa á límmiða upp