From Fab Lab Wiki - by NMÍ Kvikan
Revision as of 20:41, 23 June 2017 by Aronmoon (talk | contribs)
Jump to navigation Jump to search

Forritun AVR örgjörva með Arduino

Hér verður sýnt hvernig skal forrita ATttiny44 og ATttiny45 örtölvur í Arduino umhverfinu. Einn munurinn á ATtiny44 og ATtiny45 er sá að ATtiny44 hefur 14 pinna á sér en ATtiny45 hefur aðeins 8. Sem þýðir það að ATtiny44 getur keyrt flóknari skipanir og hefur fleiri input og output en ATtiny45. Hér að neðan má sjá teikningar af ATtiny44 og ATtiny45.

Það sem að við þurfum til að forrita ATtiny örtölvurnar er:ISP(In system programmer) sem er tengdur með Usb tengi í tölvu. Hægt er að útbúa sinn eigin ISP og er hann kallaður Fab ISP Algengir ISP fyrir samskonar verkefni eru:


Install á stuðning við ATtiny í Arduino

Best er að hafa alltaf nýjustu útgáfu Arduino. Farið á heimasíðu Arduino og hlaðið niður forritinu.

  • Opnið nú arduino og byrjið á að fara í "file" og svo "preferences"

  • Smellið á OK hnappinn til að vista
  • Farið nú í “tools" svo "boards" og loks “boards manager”

  • Skrollið neðst, þar á að vera dálkur sem heitir “attiny by David A.Mells

  • Smellið á þann dálk og svo á install hnappinn. (Veljið nýjustu útgáfuna, 1.0.2 í okkar tilfelli).
  • Nú ætti að standa “installed” hjá textanum

  • Lokið “boards manager”
  • Farið í tools og veljið board. Nú ætti Attiny að birtast þar
  • Veljið svo annaðhvort ATtiny24/44/84 eða ATtiny25/45/85

  • Í processor er svo annaðhvort 44 eða 45 valið eftir því hvaða örtölva er notuð

  • Í “clock” er valið 8Mhz external ef AVRISP mkII er notaður til að forrita brettið en 8Mhz er hámarkið fyrir AVRISP mkII

Tenging

Tengið nú þann ISP sem notaður er við brettið. Ef AVRISP mkII er notaður og:

  • Grænt ljós kemur á hann: Brettið fær straum og allir íhlutir eru lóðaðir rétt á.
  • Gult ljós kemur á hann: Brettið fær straum en eitthvað á brettinu er ekki eins og það á að vera. Athugið hvort köld lóðning sé á einhverjum stað eða hvort eitthvað sé tengt sem ekki á að tengjast.
  • Rautt ljós kemur á hann: Brettið fær ekki straum

Ef allt er rétt tengt þá er næst farið í tools og smellt á "burn bootloader" Þetta er skref sem þarf aðeins einu sinni að gera við hvert bretti eða ATtiny

Forritun

Til að sjá hvort brettið verði rétt forritað keyrum við kóða úr arduino safninu

  • Farið í file>examples>basics>blink

  • Breytið pinnanúmerunum úr 13 í 0 í kóðanum
  • Farið í Tools > Board menu og veljið þann ATtiny sem er notaður að þessu sinni í Tools > Processor
  • Veljið þann programmer sem notaður er í Tools > Programmer (t.d. USBtinyISP, FabISP, eða TinyProgrammer, o.s.frv.)
  • Smellið á upload sketch
  • Nú ætti að standa neðst á skjánum “Done uploading.” og engin error skilaboð.



Tenglar