Hlaði er biðröð þar sem það fyrsta sem fer á hlaðann kemur síðast af honum. Þetta er því því einnig kallað FILO (First In, Last Out). Góð myndlíking fyrir þetta er pringles dós: þú getur ekki náð neðstu flöguna úr dósinni nema að taka allar hinar flögurnar upp úr fyrst.
Einföld reiknivél
Þegar við framkvæmum reikniaðgerðir eins og +, -, * og / þá ritum við þær oftast á infix formi, þannig að aðgerðin komi á milli talnanna sem hún tekur til: 2 - 3. En allt eins væri hægt að rita aðgerðina á undan (prefix) eða á eftir (postfix): - 2 3 eða 2 3 -
Búum til postfix reiknivél með pringles dós. Við byrjum með dósina tóma og flögurnar fyrir framan okkur, ásamt runu af táknum. Reikniritið er þannig:
- Við tökum eitt tákn á fætur öðru úr rununni
- Ef að táknið er tala þá skrifum við töluna á flögu með tússpenna og setjum hana ofan í dósina.
- Ef að táknið er +, -, * eða /, þá tökum við tvær flögur upp úr, beitum aðgerðinni á tölurnar tvær í þeirri röð sem við tókum þær upp úr, og setjum niðurstöðuna ofan í dósina.