Darri Gunnarsson
Ég heiti Darri og er fæddur 8 apríl 1997. Ég er búinn að búa til Heimaeyjarskurðarbretti sem var búið til í shopbot fræsivélinni. Ég er líka búinn að búa til hval í laservélinni. Þegar ég gerði heimaeyjarskurðabrettið þá notaði ég inkscape til að teikna eftir mynd sem ég fann á netinu(google). Ég gerði hvalinn alveg eins nema bara í laservélinni. Ég lenti ekki í neinum vandræðum með hvalinn en það var líka út af því að ég kunni þá að gera þetta. Ég byrjaður á nýju verkefni ég er að búa til sveitabæ. Ég þurfti að búa til eins og lítið model til að tékka hvort að þetta væri í réttum hlutföllum. Ég lenti í vandræðum með að teinka það upp en svo fattaða ég að það er hægt að breyta því sem að ég var búinn að gera. Það var svolítið meira vesen heldur en hitt. Ég lenti t.d í veseni með að skera út pappann, það virkaði ekki að skera út efri línuna af einni hliðinni. Ég er ekki alveg búinn með með bæinn en hann er næstum því alveg búinn, ég á bara eftir fræsa hann út í við. Því miður gat ég ekki fræst út sveitabæinn af því að seinasti tíminn féll niður vegna veðurs. Ég get ekki heldur látið seinasta pdf skjalið af bænum (skjal prufa 4) því að það er niður í fablab húsinu. En auðvitað hef ég áhuga á að koma í fablab á næsta skólaári og þá get ég líklega klárað þennan bæ =D Og kannski kem ég einhvern tímann í frítíma mínum niður í fablab til að klára, ég á svo lítið eftir. En ef ég nota ekki frítíma minn þá sæki ég um örugglega um á næsta ári(ef það verður í boði)
Skjöl og myndir
Þetta eru næstum öll .pdf skjölin sem að ég notaði.
Myndin fyrir ofan er myndin af Vestmannareyjarskurðarbrettinu en myndin fyrir neðan er af hvalnum.