From Fab Lab Wiki - by NMÍ Kvikan
Revision as of 17:07, 11 March 2009 by Frosti (talk | contribs) (→‎Ferli við fræsun: tók út # Slökktu núna á spindelnum með því að ýta aftur á úttak 1 í handstýringunni.)
Jump to navigation Jump to search

Hugtök

  • VFD - Variable Frequency Drive; einnig þekkt sem tíðnistillir
  • Stjórntölva - Stór málmlitaður kassi sem hefur að geyma tölvustýringar fyrir vélina
  • Tölvan - tölvan sem þú hannar verkefnið á.
  • Spindel - fræsihausinn - sá partur sem snýst í hringi.
  • Fræsitönn - tönn sem festist í fræsihausinn sem grefur í efnið.
  • Tíðnistillir - sjá VFD
  • Hz eða Hertz - tíðni; hversu oft á sekúndu atburður á sér stað.
  • Pedant - gulur kubbur með þremur tökkum: neyðarrofa, reset takka og start takka.

Myndir


Shopbot skref

Undirbúningur verkefnis

  1. Flytjið skrá inn í Partworks hugbúnaðinn eða hannið beint í þeim hugbúnaði.
  2. Skilgreina stærð og þykkt efnis sem á að meðhöndla áður en þú byrjar að hanna.
  3. Þegar hönnunin er tilbúin þarf að búa til skurðarbrautir fyrir vélina.
    1. Veljið Toolpaths. Þar bjóðast nokkrir valkostir um fræsingu:
      • V-Carve: V-laga skurður gerður með v-tönn
      • Profile: Einfaldur skurður eftir línu
      • Pocket: Fjarlægja efni innan úr lokuðum ferli
      • Drill: Bora göt
      • Texture: Vinna áferð ofan í efnið
    2. Veljið dýptina sem á að fræsa úr og í. Yfirleitt viltu byrja í núllpunkti efnisins. Dýptin sem þú grefur í er mismunandi eftir markmiðum, en ætti aldrei að vera meira en þykkt efnisins.
    3. Veljið Fræsitönn.
      • Mismunandi fræsitennur gefa mismunandi niðurstöður. Helstu tegundir eru:
        • Bein tönn: Best þegar á að fjarlægja flatarmál frekar en að skera bara.
        • V-tönn: Góð til að gera fína skurði og áferðir.
        • Up-cut tönn: Togar sag upp úr holum, virkar best á efni sem hafa mikið af fíngerðu sagi en brotnar ekki upp úr, s.s. MDF og spónaplötur.
        • Down-cut tönn: Ýtir sagi niður, virkar best á efni sem brotnar mikið upp úr, s.s. krossviði.
    4. Eftir því hvernig fræsingu þú ætlar að framkvæma geturðu valið fleiri stillingar - það eru um að gera að pæla í þeim og prófa sig áfram.
  4. Vistaðu skurðarbrautirnar (.shp skrá)
  5. Vistaðu verkefnið. (.crv skrá)

Festa efni

Gætið þess að skorða efni vel. Mögulegt er að skrúfa efnið niður, en gæta verður þess að hafa skrúfur utan þess svæðis sem á að fræsa.

ATH: Ef að efni fer á flakk meðan verið er að fræsa getur það skotist til, skemmst, brotið fræsitennur, og valdið bruna.

Ferli við fræsun

  1. Kveikja á rauða/gula rofanum (stilla á I) á stjórntölvunni.
    • Þetta kveikir á stjórntölvunni og kæliviftu spindelsins.
  2. Ýta á reset takkann á pendantnum.
    • Þetta kveikir á VFD tíðnistillinum.
  3. stilla á 150 á tíðnistillinum
    • Við þurfum að hita spindelinn upp. Ágætt er að byrja í 150 og vinna sig upp.
  4. Opna ShopBot 3 forritið
    • Stundum tilkynnir forritið við ræsingu villu 91. Ef það gerist, eyddu þá c:\Program Files\Shopbot\Shopbot3\shopbot.ini og prófaðu aftur. Þá þarftu að gefa upp frumstillingar fyrir vélina. Þær eru í PRS/Alpha/120x60.
  5. Tryggja að forritið sé stillt til að vinna í millimetrum.
  6. Smella á gula takkann á skjánum fyrir ofan "Absolute" til að opna handstýringuna.
  7. Tryggja að fræsitönn sé hæfilega hátt uppi til að hún rekist ekki í neitt þegar hún fer í gang.
  8. Smella á úttak 1 á skjánum í handstýringarglugganum.
  9. Setja upp heyrnahlífar, ath allir inni í smiðjunni eiga að gera það.
  10. Ýta á start takkann á pedantnum
    • Þá byrjar spindelinn að snúast.
  11. Hita upp í 2 mínútur
  12. Hækka tíðnina smám saman í 270 og hita í 2 mínútur þegar þangað er komið.
  13. Núllstilla borðið
    • Færa endann á fræsitönninni á núllpunkt verkefnisins og veldu Zero->Zero three axis
    • X ásinn er breiðasti ásinn á vélinni
  14. Færðu tönnina upp þannig að hún sé fyrir ofan efnið.
  15. Hlaða inn skrá sem á að vinna
    1. sækja skrá ( File -> Part File Execute)
  16. Kveikja á ryksugu
  17. Smella á start á tölvunni, og svo ýta á start takkann á pedantnum
    • Þá fer spindelinn í gang
  18. Smella á ok í tölvunni
  19. Fylgjast vel með og ef eitthvað fer úrskeiðis er hægt að smella á neyðar örggisrofa

Frágangur

  1. Færa fræsitönn þannig að hægt sé að losa um efni eða skipta um fræsitönn (þetta er gert með shopbot stýrihugbúnaðnum)
  2. Slökkva á ryksugu með því að smella á hvítan rofa við rafmagnsinntakið.
  3. Til þess að slökkva á, smella á loka hnapp (X) í shopbot stýrihugbúnaðnum
  4. lækka tíðni í 150 á tíðnistillinum.
  5. Slökkva á rauða/gula rofanum
  6. Taka allar skrúfur og festingar frá.
  7. Sópaðu upp sag sem gæti hafa fallið til.

Tenglar