Til þess að skera út límmiða í Roland GX 24
Hægt er að skera út límmiða í Roland GX 24 beint úr Inkscape:
Kveikja á Roland vinyl skera
- Setjið efni í Roland vinylskerann.
- Ath hægt að losa um á bakhlið til að setja inn efni.
- Kveikið á Roland vinylskeranum.
- Smellið á pílu upp eða niður á tækinu og veljið Piece
Undirbúningur
Útbúið vektor mynd í Inkscape Stafir skulu ekki vera með fyllingu (sbr. Object-> Fill and Stroke og hafa No Fill
Skera út
- Veljið File -> Print -> Roland GX 24
- Veljið Preferences -> Veljið Get data from Machine.
- Smellið svo á OK eða Print
Einnig er hægt að notast við Cut Studio hugbúnaðinn
Tenglar
http://www.rolanddga.com/asd/products/cutters/gx24/ Vídeó hvernig festa á límmiða upp