C

From Fab Lab Wiki - by NMÍ Kvikan
Jump to: navigation, search

Forritunarmálið C eða bara C er forritunarmál sem var þróað af Ken Thompson og Dennis Ritchie á áttunda áratugnum til notkunar á UNIX stýrikerfinu. Í dag er það notað á nær öllum stýrikerfum í heimi og er vinsælasta forritunarmálið til kerfisforritunar. C þýðendur eru til fyrir langflesta örgjörva og örstýringar, en mjög vinsæll þýðandi er GCC.

C hefur verið útvíkkað margsinnis en vinsæl afbrigði eru C++, Objective C og C#, en auk þess hafa mörg önnur mál á borð við Java notað málfræði C sem grunn.

C fylgir engum einum staðli, en nokkrir staðlar eru til sem að menn geta kosið að fylgja, ef þeir kjósa svo. Vinsælustu staðlarnir eru fyrst K&R sem eins og nafnið gefur til kynna var það sem Ken og Dennis notuðu í byrjun, seinna voru fleiri staðlar búnir til, t.d. ANSI C (einnig kallað ISO C eða ISO 9899:1989) og C99 (ISO 9899:1999). Á Íslandi er í gildi Íslenskur staðall ÍST ISO 9899:1992 um forritunarmálið C, en sá staðall er mjög lítið sjálfstætt viðurkenndur meðal forritara, enda er hann ófrábrugðinn ANSI C.

C er mjög nálægt vélbúnaðinum, sem þýðir að C kóði hefur mjög litla falda virkni, og flestar skipanir þýðast beint yfir í smalamál með litlum breytingum. Einnig hefur C nánast ótakmarkaðann aðgang að minni tölvunnar en það takmarkast eingöngu við réttindastýringum stýrikerfisins ef eitthvað er. Þetta gerir C að öflugu forritunarmáli en jafnframt erfitt í viðhaldi og villuleit.

halló, heimur í C

#include <stdio.h>
int main(void) {
    printf("halló, heimur\n");
    return 0;
}


Þessi grein var upprunalega fengin frá greininni C (forritunarmál) á Wikipedia, Frjálsa alfræðiritinu. Sótt 6. júlí 2009.